Jæja, núna er ég búin að vera hérna næstum í viku og mér líkar bara alltaf betur og betur við staðinn. Corralejo er mjög krúttlegur og lítill bær með alveg rosalega mikið af túristum og allir eiginlega frá Englandi. Ég er bara búin að halda low profile á því að ég sé íslendingur afþví ég veit vel að englendingunum líka alls ekkert vel við okkur. Um helgina fór ég t.d á einn bar og Mariana herbergisfélaginn minn kynnti mig fyrir einum breskum manni sem vinnur hérna og hann leit á mig eins og ég væri ekki mannleg. Mér leið eiginlega fáránlega, en shit ég ætla nú ekki að láta það á mig fá.
Ég er búin að upplifa alveg rosalegar veðrabreytingar hérna, en nuna er vetur hérna á kanarý og janúar er eiginlega kaldasti mánuðurinn. Hitinn alveg í sólinni yfir daginn fer samt alveg upp í 28 gráður, en það er frekar mikill vindur alltaf, sem er fínt fyrir alla vind surf og brimbretta gauranna sem eru hérna, en Corralejo býður upp á mjög góð skilyrði fyrir svona vatns íþróttir. Það er ótrulega gaman að fylgjast með þeim og mig langar geðveikt að prófa það, en ég held að ég láti það ógert í bili. En allavega þá var ég að labba heim úr vinnunni á fimmtudaginn í þessari blíðu og ekki eitt ský á himninum, en allt í einu kemur eitt risa ský yfir bæinn með bilaðri rigningu, held meira að segja að hún hafi toppað Svíþjóð ´06. Ég var alveg gegn rennandi blaut, alveg eins og ég hafi ný stigið út úr sturtinni í öllum fötunum. Þar sem ég var að labba strandar leiðina heim, gat ég heldur ekki farið bak við neitt skjól svo ég þurfti bara að labba og vonaði að hún myndi ganga yfir sem allra fyrst. Sem að hún gerði, afþví 5 mín síðar var skýið farið yfir og aftur heiðskýrt og sól. Mjög fyndið...
En ég er ætla að setja nýja heimilisfangið mitt inn og leið og ég er búin að finna út hvernig ég breyti því hérna við hliðina. Ég man nefninlega engan veginn hvernig ég gerði þetta síðast, svo ég set hana bara inn hérna í bloggið núna, en allavega:
RESIDENCIAL LOS BARQUEROS 69
AVENIDA NUESTRAA SRA. DEL.
CARMEN N°13 LOCAL 1
35660 CORRALEJO
FUERTEVENTURA, LAS CANARIAS
SPAIN
EUROPE
Ég fór út með Braz og þýskri vinkonu hennar um helgina, og júú ég fór á live rokk barinn sem er bara legendary og uppáhald, að horfa á Michael syngja.. það var reyndar bara mjög fínt. Svo kíktum við út og það er bara ágætis djamm líf hérna. En um helgina átti ég frí, svo ég var bara að slaka á og liggja i sólbaði og lesa blöð. vá þetta er svo mikið ljúfa lífið, held að það gerist ekki mikið betra en þetta og mér líður mjög illa að samlandar mínir eru í einhverju kreppu, óvissu rugli.
Það var svo gott að koma heim yfir jólin og ég skemmti mér alveg rosalega vel, fyrir utan það að ég var meira og minna veik allan tímann. Fyndið hversu mikið loftslag getur haft á mann. En það var gott að hitta fjölskylduna og vinina og mér leið mjög vel heima aftur. Svo gott að hitta pabba og Sirrý og Jóhann og Tedda í Reykjavík. Og svo mömmu, Halla, strákana og ömmu og afa heima á Akureyri. Hefði samt rosalega verið til að hitta ömmu og afa á neskaupstað, en ég fer bara í heimsókn austur um leið og ég kem aftur heim til Íslands. En skemmti mér alveg konunglega með stelpunum mínum heima, og vá hvað það var gott að hitta þær aftur ;* og takk kærlega fyrir mig sætu mínar...
þaað sem þið eruð sætar...
oog elsku þórdís og guðrún 
Þess vegna var eiginlega svolítið erfitt að fara aftur út, og ég var eiginlega með heimþrá alla leiðina hingað út. Það var allt í svo mikilli óvissu og ég eyddi mjög miklum tíma að tala um kreppuna við hann Halla stjúpa, sem var að reyna að útsýra þetta allt fyrir mér, og ég komst eiginlega að þeirri niðurstöðu að mig langaði ekkert að vita um þetta. Það er svo mikil spilling, óheiðarleiki og rugl í þessu að það er bara betra að vera vitlaus og láta mig ekkert varða um þetta, en þetta er bara svo stórt mál að ég get ekki, ekki verið inn í þessu. En eins og Hildur frænka sagði, að þá hættir maður bara að horfa á fréttirnar á kvöldin afþví þær eru svo neikvæðar og leiðinlegar og maður verður bara enn þunglyndari...
En gamli sæti pabbinn minn átti afmæli 15. janúar sl. og ég vil bara enn og aftur óska honum hjartanlega til hamingju. Litla unglambið mitt er orðinn 43 ára gamall og heilsast bara vel eftir aldri og átti bara mjög góðan dag. Ég hélt að sjálfsögðu upp á það með að fá mér bjór honum til heiðurs ;*
þarna er hann reyndar 42, en hann hefur nú ekkert rosalega mikið breyst 
Elska þig gamli minn ;*
En jæjaaa, ég ætla að kveðja í bili og bið að heilsa öllum...
Eigiði yndislegan dag ;*
Buenos noches guapos